Ecoraster er tilvalið á bílstæði
Hvort sem um ræðir minni bílastæði eða stór bílaplön þá erum við með grindurnar í verkið
Sterkar, endingargóðar og hægt að taka upp og leggja aftur

Ecoraster er einstaklega endingargóð og hagkvæm lausn fyrir stöðug og vönduð bílastæði. Grindurnar aðlagast jarðveginum, jafnvel á ójöfnum svæðum, og innbyggðar þenslutengingar tryggja jafna dreifingu á þunga og stöðugt yfirborð án mikillar jarðvegsvinnu. Þetta sparar bæði tíma og kostnað.

Ecoraster er vatns gegndræpt kerfi sem gerir það mögulegt að sleppa við dýrar frárennslislagnir og stuðlar að náttúrulegu frárennsli. Grindurnar hafa sannað sig við íslenskar aðstæður í áratugi, þær þola íslenskt veðurfar og mikið umferðarálag.

Grindurnar eru hannaðar til að standast mikið álag, allt að 800 tonn á fermetra (eftir gerð og fyllingu). Þær henta því jafn vel undir venjulegar fólksbifreiðar og þungar vinnuvélar eða vörubíla. Ecoraster er viðurkennt sem jarðvegsstyrking fyrir aðkomu neyðarbifreiða, sem segir hversu sterkt og áreiðanlegt kerfið er.

Ecoraster er því lausnin fyrir þá sem vilja sterkt, fallegt, umhverfisvænt  og áreiðanlegt bílastæði sem stenst íslenskt veðurfar ár eftir ár.

Innkeyrslur

Ecoraster skapar traustan, stöðugan og slitsterkan grunn fyrir innkeyrslur heimahúsa og sumarhúsa. Grindurnar dreifa álagi jafnt, draga úr drullu og vatnssöfnun, og tryggja öruggt yfirborð fyrir bíla og gangandi umferð. Grindurnar eru auðveldar í uppsetningu, endingargóðar og þola vel íslenskar aðstæður.

Einfalt og fljótlegt að leggja

Einfalt og fljótlegt er að leggja Ecoraster grindurnar. Einn maður getur lagt allt að 100 fermetra á klukkustund við góðar aðstæður. Grindurnar smella auðveldlega saman án þess að þurfa sérstök verkfæri eða þjálfun, sem sparar bæði tíma og vinnuafl. Ef þörf er á að aðlaga þær að sérstökum lögunum eða smáatriðum í umhverfinu, er einfalt að saga eða sníða þær til með hefðbundnu handverkfæri en við bjóðum einnig beygjueiningar þegar aðlaga þarf að svæði sem er með sveigjur sem tryggir faglegt og nákvæmt útlit.

Gæðavottanir

Ecoraster jarðvegsgrindurnar eru TÜV CERT vottaðar samkvæmt DIN 1072 fyrir háan burðarstyrk. Grindurnar þola allt að 800 tonn á fermetra (fer eftir grind og fyllingu). Allar ECORASTER vörur eru prófaðar samkvæmt DIN 38412 staðlinum og eru umhverfislega hlutlausar.

Skoða vottanir

Kostir & fyllingar

Það skiptir miklu máli að nota sterka og endingargóða lausn þegar leggja á bílastæði, og þar nýtast Ecoraster jarðvegsgrindur sérstaklega vel. Þær eru auðveldar í uppsetningu, gerðar úr hágæðaefnum og hannaðar til að endast árum saman.
Grindurnar bjóða upp á fjölbreytta möguleika í fyllingu t.d. möl, steinhellur eða gras. Fyrir bílastæði er þó oft mælt með möl eða hellum til að tryggja hámarks styrk og vernd á undirlaginu.
Hafðu samband og við hjálpum þér að skapa stöðugan og áreiðanlegan grunn fyrir þitt svæði.

Stöðugt yfirborð

Innbyggðar þenslutengingar tryggja jafna dreifingu á þunga og stöðugri yfirborð án mikillar jarðvegsvinnu. Ekki þarf að þjappa jarðveginn eins mikið og við hefðbundin bílastæði, sem sparar tíma og kostnað. Ecoraster er samþykkt sem jarðvegsstyrking fyrir aðkomu neyðarbifreiða, sem segir allt sem segja þarf um styrk og áreiðanleika kerfisins.

Merkingar

Við bjóðum upp á skýrar og endingargóðar bílastæðamerkingar sem passa í E40, E50 og Bloxx grindurnar. Hægt er að velja hefðbundnar merkingar eða 0.5 Bloxx einingar í mismunandi litum fyrir stílhreina og sýnilega lausn. Merkingarnar henta vel til að aðgreina bílastæði einnig til að sérmerkja stæði eins og hleðslustæði, stæði fyrir hreyfihamlaða o.fl.

Bílastæði við hleðslustöðina

Ecoraster er fullkomin lausn fyrir bílastæði við hleðslustöðvar, þar sem kerfið veitir stöðugt og gegndræpt yfirborð sem dregur úr pollamyndun og heldur svæðinu snyrtilegu og öruggu. Grindurnar eru framleiddar úr 100% endurunnu plasti og bjóða þannig upp á umhverfisvænan valkost sem stenst mikið álag.

Hægt að flytja og endurnýta

Ecoraster grindurnar má taka upp og leggja aftur á öðrum stað og eru því einstakur kostur fyrir þá sem vilja sveigjanlegar og umhverfisvænar lausnir í lagningu yfirborðs. Þetta gerir Ecoraster að hentugu lausn fyrir svæði sem taka breytingum. Grindurnar nýtast einnig vel þar sem yfirborð þarf að vernda tímabundið en fjarlægja lausnina síðar án þess að skemma jarðveginn undir.

Samhliða öðrum lausnum

Grindurnar henta vel til notkunar samhliða öðrum lausnum. Við sundlaug Kópavogs voru Ecoraster jarðvegsgrindur notaðar til þess að minnka álag og styrkja jarðveg, og viðhalda gróðri í sambland við hefðbundna hellulögn. Þessi samsetning skapar bæði fallegt og endingargott yfirborð sem hentar vel fyrir svæði með mikla umferð. Ecoraster stuðlar þannig að betra frárennsli vatns og dregur úr hættu á jarðvegseyðingu, jafnvel þegar hún er notuð með öðrum efnislausnum.

Sjáðu notkunarmöguleikana

Smelltu á myndirnar til að opna myndasafnið

Þessar vörur henta vel fyrir bílastæði

Bloxx

Jarðvegsgrind fyrir steinhellur. Hentar fyrir göngustíga, bílastæði, innkeyrslur o.fl.

Bloxx 0.5

Fyrir göngustíga, bílastæði, bílastæða-merkingar og fleira.

E80 Heavy

Einstaklega sterk grind fyrir gámasvæði, vegi, flugvelli, hafnarsvæði o.fl.

E50

Sterk grind, notuð í bílastæði og vegi þar sem álagið er mikið.

Ecoraster 0.5

Hálf E50 jarðvegsgrind sem auðveldar nákvæman frágang.

E40

Vinsælust - Fyrir göngustíga, bílastæði við heimahús ofl.

E40 XXL

Stór E40 grind fyrir léttari bíla umferð, göngustíga, garða o.fl.

TE40 XXL

Sterkt undirlag sem tryggir stöðugleika, auðveldar viðhald og hentar fyrir búfé, hesta, stíga og umferð.

Bílastæða merkingar

Bílastæðamerkingar sem smellast beint í grindurnar.

Bílastæðamerki

Bílastæðamerkingar fyrir sérmerkt stæði sem passar fullkomlega í Ecoraster Bloxx.

Beygjur

Beygjueiningar auðvelda lagningu stíga með fallegum og flæðandi beygjum.

Lamir

Tengieining sem auðveldar uppsetningu jarðvegsgrinda í halla og ójöfnu landslagi.

Bloxx

Jarðvegsgrind fyrir steinhellur. Hentar fyrir göngustíga, bílastæði, innkeyrslur o.fl.

Bloxx 0.5

Fyrir göngustíga, bílastæði, bílastæða-merkingar og fleira.

E80 Heavy

Einstaklega sterk grind fyrir gámasvæði, vegi, flugvelli, hafnarsvæði o.fl.

E50

Sterk grind, notuð í bílastæði og vegi þar sem álagið er mikið.

Ecoraster 0.5

Hálf E50 jarðvegsgrind sem auðveldar nákvæman frágang.

E40

Vinsælust - Fyrir göngustíga, bílastæði við heimahús ofl.

E40 XXL

Stór E40 grind fyrir léttari bíla umferð, göngustíga, garða o.fl.

TE40 XXL

Sterkt undirlag sem tryggir stöðugleika, auðveldar viðhald og hentar fyrir búfé, hesta, stíga og umferð.

Bílastæða merkingar

Bílastæðamerkingar sem smellast beint í grindurnar.

Bílastæðamerki

Bílastæðamerkingar fyrir sérmerkt stæði sem passar fullkomlega í Ecoraster Bloxx.

Beygjur

Beygjueiningar auðvelda lagningu stíga með fallegum og flæðandi beygjum.

Lamir

Tengieining sem auðveldar uppsetningu jarðvegsgrinda í halla og ójöfnu landslagi.

Fullkomið fyrir tjaldsvæðið

Grindurnar dreifa þunga, styrkja jarðveginn og tryggja náttúrulegt frárennsli svo svæðið helst þurrt og stöðugt við allar aðstæður. Engar holur og ójöfnur.

Vissir þú þetta um Ecoraster?

Vatnið kemst burt

Ecoraster styður við jarðveginn og auðveldar frérennsli vatns.  Svæðið verður endingargott, viðhald minnkar og yfirborðið helst slétt og snyrtilegt.

Fullkomin lausn fyrir dýrin

Ecoraster er fullkomin lausn fyrir landbúnaðinn, hvort sem um ræðir útisvæði fyrir dýr, stíga, vegi eða aðgengi að hlöðum og húsum. Reynslan sýnir að grindurnar bæta líðan húsdýra, draga úr slysum og minnka líkur á sjúkdómum.

Þær veita stöðugt og endingargott yfirborð sem dregur úr holum, drullu og skemmdum í jarðvegi, á sama tíma og vatn rennur auðveldlega niður í jarðveginn. Þetta gerir svæðin bæði öruggari og þægilegri fyrir hesta, kýr, kindur og önnur húsdýr, sem geta gengið á traustum jarðvegi án þess að renna til eða festast.

Vissir þú þetta um Ecoraster?

20 tonna öxulþungi

Grindurnar þola allt að 20 tonna öxulþunga og henta vel þar sem er mikil umferð vinuvéla.  Snjómokstur er líka ekkert mál með Ecoraster.

KLP® pallaefni

KLP® pallaefni er frábært fyrir þá sem vilja pall sem endist áratugum saman án þess að þurfa að bera á, mála eða hafa áhyggjur af rotnun. Efnið er úr 100% endurunnu plasti, flísast ekki, er stöðugt og minnkar líkur á hálku. Með náttúrulegu timbur útliti, en margfalt meiri endingu, hentar KLP® fyrir heimili, sumarhús, opin svæði og fyrirtæki sem vilja sjálfbæra og áreiðanlega lausn.

Vissir þú þetta um Lankhorst KLP?

50 ára ábyrgð

KLP® efnið er sterkara og stöðugra en hefðbundinn viður, þolir raka og veðrun án rýrnunar og kemur með allt að 50 ára ábyrgð

Bloxx hellukerfið

Með Ecoraster Bloxx verður hellulögn einfaldari en nokkru sinni fyrr. Grindurnar smellast auðveldlega saman og halda hellunum stöðugum. Þú þarft minni undirvinnu, vinnan gengur hraðar fyrir sig og útkoman er endingargóð, stílhrein og umhverfisvæn.

Vissir þú af Ecoraster Bloxx?

Stöðugri hellur

Með Bloxx færðu stíga sem líta út eins og hefðbundin hellulögn, en eru mun stöðugri, gegndræpari og umhverfisvænni.

Snyrtilegir kantlistar

Hjá okkur getur þú valið kantlista úr áli eða endurunnu plasti, sem henta sérlega vel til að aðskilja efni í hönnun á görðum, móta stíga, beð og pallsvæði eða skipta lóðinni upp á snyrtilegan og stílhreinan hátt.

Vissir þú af kantlistunum?

Fyrir stílhreinan frágang

Grindurnar eru með öruggar og nettar læsingar. Það er auðvelt að losa grindurnar í sundur og nota  á nýjum stað.

Ecoraster E40 hentar fyrir göngustíga

Hlykkjóttir göngustígar eru ekkert vandamál.  Við erum með beygjueiningar sem gera þér kleift að leggja grindurnar eftir göngustígunum!

Vissir þú þetta um Ecoraster?

Öruggar læsingar

Grindurnar eru með öruggar og nettar læsingar. Það er auðvelt að losa grindurnar í sundur og nota  á nýjum stað.

Hér má sjá nokkur myndbönd af því hvernig Ecoraster grindurnar hafa verið notaðar hér á Íslandi

Skýringarmynd E50 og Bloxx

Flott að blanda saman

Öruggar læsingar 36 hnappar á m². Mjög sterkir

Efni: Endurunnið LDPE
100% umhverfislega hlutlaust.
20 ára ábyrgð á efninu

Þola mikið, allt að 800 t/m² þrýsings álag (DIN EN 124: 2011)
allt að 20 tonna öxulþunga (DIN 1072)

Fylling að eigin vali, sumir yfirfylla aðrir sléttfylla

Veggþykktin er frá 2,5mm upp í 5 mm eftir gerðum

Bloxx valmöguleiki í hellum:
steypar, granít eða gúmmíhellur
(möguleikar í litum og merkjum, hafið bara samband)

Skýringarmynd E50 og Bloxx

Flott að blanda saman

Öruggar læsingar 36 hnappar á m². Mjög sterkir

Efni: Endurunnið LDPE
100% umhverfislega hlutlaust.
20 ára ábyrgð á efninu

Þola mikið, allt að 800 t/m² þrýsings álag (DIN EN 124: 2011)
allt að 20 tonna öxulþunga (DIN 1072)

Fylling að eigin vali, sumir yfirfylla aðrir sléttfylla

Veggþykktin er frá 2,5mm upp í 5 mm eftir gerðum

Bloxx valmöguleiki í hellum:
steypar, granít eða gúmmíhellur
(möguleikar í litum og merkjum, hafið bara samband)