Færanleg vökvunarkerfi frá Buchholz Group tryggja skilvirka, jafna og góða vökvun með lágmarks fyrirhöfn. Þau eru sérstaklega hönnuð fyrir svæði með breytilega notkun og minni vökvunarsvæði, og henta því einstaklega vel fyrir ræktunarsvæði/garðyrkju, landbúnað, reiðsvæði og íþróttavelli (t.d. fótboltavelli). Kerfin eru færanleg og auðveld í flutningi og uppsetningu milli svæða. Með langa drægni og sterka hönnun tryggja þau góða vökvun, auk þess sem þau stuðla að hagkvæmri og vistvænni nýtingu vatns, sem minnkar sóun og eykur skilvirkni.
Við bjóðum upp á þrjú mismunandi færanleg vökvunarkerfi til að mæta þörfum hvers svæðis: Vatnsprins, Vatnskóngur og Vatnskeisari. Nánari upplýsingar um kerfin má finna hér að neðan.

