Veldu ECOgreen gróðurþök og umbreyttu þakinu í vistvænt og grænt svæði. Þetta létta og sjálfbæra kerfi er auðvelt í uppsetningu og hentar bæði nýjum og eldri þökum. Gróðurþakið heldur vatni og gefur plöntunum næringu, á sama tíma sem þakið verndar bygginguna og minnkar álag á fráveitu. Með gróðurþakinu verða loftgæði betri, þakið fær lengri líftíma og útlitið verður fallegt og náttúrulegt. Þak með ECOgreen sameinar útlit, ávinning og umhverfisábyrgð. Lausn sem styrkir bæði eignina þína og náttúruna í kring.
Lausn fyrir framtíðina
Loftslagsbreytingar leiða í auknum mæli til mikilla úrkomuatburða sem setja þéttbýli í erfiðar aðstæður. Hefðbundin frárennsliskerfi ná oft ekki að taka við vatninu og geta valdið flóði og skemmdum. Græn þök gegna lykilhlutverki. Þau virka eins og náttúrulegir svampar sem taka við regnvatni og skila því aftur smám saman, sem léttir verulega á fráveitukerfum og dregur úr flóðahættu. Þannig stuðla þau að áreiðanlegri úrkomustýringu og betri vernd innviða.
Lengri líftími þaks og betri einangrun
Græn þök lengja líftíma þaksins. Plöntulagið virkar sem náttúruleg UV-vörn sem ver yfirborð þakklæðninga fyrir skaðlegum sólargeislum og dregur þannig verulega úr slitum. Græn þök bæta einnig hljóð- og varmaeinangrun, sem hjálpar til við að halda orkunotkun í lágmarki. Þetta er því lausn sem sameinar aukna endingu, meiri þægindi og betri orkunýtingu.
Afhverju ECOgreen?
ECOgreen® er sveigjanlegt og sjálfbært kerfi fyrir græn þök sem sameinar vatnsgeymslu, langan líftíma og aukna einangrun. Kerfið dreifir þyngd jafnt, verndar þakklæðningu gegn UV-geislum, dregur úr slitum og bætir hljóð- og varmaeinangrun. ECOgreen kerfið auðveldar uppsetningu og viðhaldi á grænu þaki. Það skapar öruggt og náttúrulegt yfirborð sem bætir loftgæði, stuðlar að líffræðilegri fjölbreytni og lækkar rekstrarkostnað. Með ECOgreen® færðu fallegt, endingargott og hagkvæmt þak.
Fullkomið fyrir tjaldsvæðið
Grindurnar dreifa þunga, styrkja jarðveginn og tryggja náttúrulegt frárennsli svo svæðið helst þurrt og stöðugt við allar aðstæður. Engar holur og ójöfnur.
Vissir þú þetta um Ecoraster?
Vatnið kemst burt
Ecoraster styður við jarðveginn og auðveldar frérennsli vatns. Svæðið verður endingargott, viðhald minnkar og yfirborðið helst slétt og snyrtilegt.
Fullkomin lausn fyrir dýrin
Ecoraster er fullkomin lausn fyrir landbúnaðinn, hvort sem um ræðir útisvæði fyrir dýr, stíga, vegi eða aðgengi að hlöðum og húsum. Reynslan sýnir að grindurnar bæta líðan húsdýra, draga úr slysum og minnka líkur á sjúkdómum.
Þær veita stöðugt og endingargott yfirborð sem dregur úr holum, drullu og skemmdum í jarðvegi, á sama tíma og vatn rennur auðveldlega niður í jarðveginn. Þetta gerir svæðin bæði öruggari og þægilegri fyrir hesta, kýr, kindur og önnur húsdýr, sem geta gengið á traustum jarðvegi án þess að renna til eða festast.
Vissir þú þetta um Ecoraster?
20 tonna öxulþungi
Grindurnar þola allt að 20 tonna öxulþunga og henta vel þar sem er mikil umferð vinuvéla. Snjómokstur er líka ekkert mál með Ecoraster.
KLP® pallaefni
KLP® pallaefni er frábært fyrir þá sem vilja pall sem endist áratugum saman án þess að þurfa að bera á, mála eða hafa áhyggjur af rotnun. Efnið er úr 100% endurunnu plasti, flísast ekki, er stöðugt og minnkar líkur á hálku. Með náttúrulegu timbur útliti, en margfalt meiri endingu, hentar KLP® fyrir heimili, sumarhús, opin svæði og fyrirtæki sem vilja sjálfbæra og áreiðanlega lausn.
Vissir þú þetta um Lankhorst KLP?
50 ára ábyrgð
KLP® efnið er sterkara og stöðugra en hefðbundinn viður, þolir raka og veðrun án rýrnunar og kemur með allt að 50 ára ábyrgð
Bloxx hellukerfið
Með Ecoraster Bloxx verður hellulögn einfaldari en nokkru sinni fyrr. Grindurnar smellast auðveldlega saman og halda hellunum stöðugum. Þú þarft minni undirvinnu, vinnan gengur hraðar fyrir sig og útkoman er endingargóð, stílhrein og umhverfisvæn.
Vissir þú af Ecoraster Bloxx?
Stöðugri hellur
Með Bloxx færðu stíga sem líta út eins og hefðbundin hellulögn, en eru mun stöðugri, gegndræpari og umhverfisvænni.
Snyrtilegir kantlistar
Hjá okkur getur þú valið kantlista úr áli eða endurunnu plasti, sem henta sérlega vel til að aðskilja efni í hönnun á görðum, móta stíga, beð og pallsvæði eða skipta lóðinni upp á snyrtilegan og stílhreinan hátt.
Vissir þú af kantlistunum?
Fyrir stílhreinan frágang
Grindurnar eru með öruggar og nettar læsingar. Það er auðvelt að losa grindurnar í sundur og nota á nýjum stað.
Ecoraster E40 hentar fyrir göngustíga
Hlykkjóttir göngustígar eru ekkert vandamál. Við erum með beygjueiningar sem gera þér kleift að leggja grindurnar eftir göngustígunum!
Vissir þú þetta um Ecoraster?
Öruggar læsingar
Grindurnar eru með öruggar og nettar læsingar. Það er auðvelt að losa grindurnar í sundur og nota á nýjum stað.
Hér má sjá nokkur myndbönd af því hvernig Ecoraster grindurnar hafa verið notaðar hér á Íslandi
Flott að blanda saman
Öruggar læsingar 36 hnappar á m². Mjög sterkir
Efni: Endurunnið LDPE
100% umhverfislega hlutlaust.
20 ára ábyrgð á efninu
Þola mikið, allt að 800 t/m² þrýsings álag (DIN EN 124: 2011)
allt að 20 tonna öxulþunga (DIN 1072)
Fylling að eigin vali, sumir yfirfylla aðrir sléttfylla
Veggþykktin er frá 2,5mm upp í 5 mm eftir gerðum
Bloxx valmöguleiki í hellum:
steypar, granít eða gúmmíhellur
(möguleikar í litum og merkjum, hafið bara samband)
Flott að blanda saman
Öruggar læsingar 36 hnappar á m². Mjög sterkir
Efni: Endurunnið LDPE
100% umhverfislega hlutlaust.
20 ára ábyrgð á efninu
Þola mikið, allt að 800 t/m² þrýsings álag (DIN EN 124: 2011)
allt að 20 tonna öxulþunga (DIN 1072)
Fylling að eigin vali, sumir yfirfylla aðrir sléttfylla
Veggþykktin er frá 2,5mm upp í 5 mm eftir gerðum
Bloxx valmöguleiki í hellum:
steypar, granít eða gúmmíhellur
(möguleikar í litum og merkjum, hafið bara samband)



