Ecoraster er fullkomin lausn fyrir tjaldsvæði sem vilja endingargott og snyrtilegt yfirborð án drullu, polla og lausamöls. Grindurnar dreifa þunga, styrkja jarðveginn og tryggja náttúrulegt frárennsli svo svæðið helst þurrt og stöðugt við allar aðstæður. Ecoraster þarfnast lágmarks viðhalds og er slitsterkt og öruggt undirlag fyrir hjólhýsi, húsbíla, tjaldvagna, tjöld, bíla, gönguleiðir og sameiginleg svæði.
Ecoraster gerir tjaldsvæðið betra fyrir bæði rekstraraðila og gesti.

Ecoraster verkefni á tjaldsvæði
- Bílastæði
- Bílastæði fyrir hreyfihamlaða
- ECOgreen® grænt þak
- Stjórnar regnvatni og dregur úr pollum
- Við þjónustumiðstöð
- Göngu & hjólastígar
- Styrking á leiksvæði
- Tjaldstæði
- Í brekkur og jaðarstyrking
- Vegir og neyðaraðkomusvæði




