Ecoraster er frábær umhverfisvæn lausn til að styrkja hjóla- og göngustíga með öruggu, stöðugu og slitsterku yfirborði. Grindurnar beina öllum sama farveg og tryggja stöðugt og öruggt yfirborð sem minnkar hættu á hálku, holum eða lausu undirlagi. Gegndræpar grindurnar hleypa vatni í gegn og koma þannig í veg fyrir pollamyndun og jarðrof, en náttúrulegt útlit þeirra fellur fallega að umhverfinu þar sem þær má fylla með möl, mold, grasi eða sand. Þær eru einfaldar í uppsetningu, þurfa lítið viðhald og halda lögun sinni þrátt fyrir mikið álag og veðurfar.
Lausnin er framleidd úr 100% endurunnu plasti og hentar vel fyrir fjölbreytt not, svo sem stíga í görðum og á opinberum svæðum, leiðir við sumarhús og útivistarsvæði, stíga við skóla og leikvelli, uppi á fjöllum eða á friðlýstum svæðum þar sem náttúran á að fá að njóta sín. Þetta gerir Ecoraster að sjálfbærri og áreiðanlegri leið til að bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.








