Ecoraster Bloxx eru endingargóðar jarðvegsgrindur fyrir sérhannaðar steinhellur og standast vel krefjandi íslenskar aðstæður. Þær tryggja að hver hella haldist örugglega á sínum stað án þess að síga, haggast eða brotna, jafnvel við miklar hitabreytingar eða álag frá bílaumferð. Grindurnar hafa burðargetu allt að 800 tonn/m², eru frostþolnar, slitsterkar og sveigjanlegar, sem gerir þær áreiðanlegar bæði til lengri og skemmri tíma.
Bloxx lausnin er einnig umhverfisvæn, framleidd úr 100% endurunnu plasti, og með gegndræpu yfirborði sem hleypir vatni í gegn og útilokar þörfina fyrir frárennslulagnir eða niðurföll. Uppsetningin er einföld og fljótleg. Steinhellurnar fást í ljósgráum, dökkgráum, rauðum og hvítum lit. Ecoraster Bloxx hentar jafnt í garða og opin svæði, sem og á göngu- og hjólastíga, bílastæði, innkeyrslur og vegi. Ecoraster Bloxx sameinar styrk, fegurð og sjálfbærni í einni lausn.








