Hesthúsið
Endingargóðar lausnir fyrir hesthúsið
Betri aðstaða fyrir hest og knapa

Ecoraster er kjörin lausn fyrir svæði í og við hesthús, svo sem stíur, gerði, ganga, stíga, reiðvöllinn og aðkomusvæði. Grindurnar bæta aðstæður fyrir hesta, draga úr hálku, drullu, pollum og slysum og stuðla að betri velferð með þurrara og stöðugra undirlagi.

Grindurnar þola mikla notkun og íslenskar veðuraðstæður án þess að missa burðargetu eða lögun. Ecoraster grindur dreifa álagi jafnt og halda yfirborðinu stöðugu, jafnvel við mikla notkun, og skapa þannig áreiðanlegt undirlag fyrir hesta og knapa. Samhliða þessu eru grindurnar sveigjanlegar, sem veitir mjúka lendingu og stuðlar að minni álagi á liði, sinar og vöðva hestsins.

Grindurnar eru framleiddar úr 100% endurunnu LDPE plasti án PVC sem er öruggt í snertingu við dýr og mengar hvorki jarðveg né grunnvatn. Með einfaldri uppsetningu, litlu viðhaldi og langri endingu er Ecoraster áreiðanleg og umhverfisvæn yfirborðslausn fyrir hesthúsið.

Auk Ecoraster bjóðum við upp á fleiri lausnir fyrir hesthúsið og reiðaðstöðuna, meðal annars gúmmímottur, lýsingu og vökvunarkerfi fyrir reiðhallir og reiðvelli.

Gúmmímottur

Við bjóðum upp á gott úrval af Ecora gúmmímottum fyrir stíur, ganga, hestakerrur, önnur svæði í hesthúsinu, fjósið, vinnurými, fyrir svalirnar o.fl. Gúmmímotturnar einangra vel gegn kulda frá gólfi, vernda liði hesta, veita gott grip, draga verulega úr hávaða og auðvelda þrif.

Skoða nánar

Íshestar gerði

Í þessu myndbandi má sjá uppsetningu á um 1.050 m² Ecoraster gerði hjá Íshestum. Lausnin myndar traust og vatnsgegndræpt undirlag sem þolir mikla notkun og breytilegar veðuraðstæður. Grindurnar dreifa álagi jafnt, draga úr drullu, holum og vernda jarðveginn fyrir skemmdum. Útkoman er hreinna umhverfi, minna viðhald og betri aðstæður fyrir hesta með stöðugu og slitsterku yfirborði sem endist til langs tíma.

Skoða myndband

Lýsing

Góð lýsing skiptir miklu máli fyrir öryggi og vinnuaðstæður í hesthúsum og reiðhöllum. Við bjóðum upp á lýsingu sem er sérstaklega hönnuð fyrir reiðhallir, íþróttasvæði og önnur stór svæði.

Skoða nánar

Reiðhallargólf

Í reiðhöllum skiptir gólfið öllu máli. Það þarf að þola mikið álag, halda réttu rakajafnvægi og stöðugleika þrátt fyrir mikla og reglulega notkun. Með Ecoraster færðu yfirborð sem er stöðugt, sveigjanlegt og einfalt í viðhaldi, hannað til að standast bæði íslenskt loftslag og daglega notkun.

Skoða nánar

Sjáðu notkunarmöguleikana

Smelltu á myndirnar til að opna myndasafnið

Þessar vörur henta vel fyrir hesthús

Allround gúmmímotta 3 cm – Rauðbrún eða svört

Slitsterk lausn fyrir stíur, gerði og önnur svæði þar sem þörf er á öruggu og þægilegu undirlagi.

Thick skin gúmmímotta 2 cm

Veitir hestinum mjúkt og þægilegt undirlag í stíunni. Einangrar vel gegn kulda frá gólfi, veitir öruggt grip og auðveldar þrif.

Soft 4,5 cm gúmmímotta

Veitir hestum einstaklega mjúkt, þægilegt undirlag sem léttir á álagi á hófa, liði og sinar. Rauðbrún eða svört

Púsl-gúmmímotta 4,3 cm

Gúmmímotta með fallvarnar vottun. Hentar vel fyrir leiksvæði, göngustíga, verönd, hesthús og önnur útisvæði.

Protect höggvarnarmotta

Ver veggi, skilrúm og innréttingar gegn höggum, spörkum og sliti. Tilvalin í hesthús, stíur, hestakerrur og önnur svæði.

Feel Good gúmmímotta

20 mm. Öruggt undirlag, gott grip, einangrar gegn kulda. Hentar vel í hesthúsið.

Basic LB motta

Slitsterk motta úr endurunnu plasti, hentar inni og úti. Fullkomin í hesthús, gerði, verkstæði og vinnusvæði.

Púsl-gúmmímotta 2,5 cm

Dregur úr hávaða, kulda og verndar liði hesta Fyrir hesthúsið, svalirnar, vinnurýmið o.fl.

Fullkomin lausn fyrir dýrin

Ecoraster er fullkomin lausn fyrir landbúnaðinn, hvort sem um ræðir útisvæði fyrir dýr, stíga, vegi eða aðgengi að hlöðum og húsum. Reynslan sýnir að grindurnar bæta líðan húsdýra, draga úr slysum og minnka líkur á sjúkdómum.

Þær veita stöðugt og endingargott yfirborð sem dregur úr holum, drullu og skemmdum í jarðvegi, á sama tíma og vatn rennur auðveldlega niður í jarðveginn. Þetta gerir svæðin bæði öruggari og þægilegri fyrir hesta, kýr, kindur og önnur húsdýr, sem geta gengið á traustum jarðvegi án þess að renna til eða festast.

Vissir þú þetta um Ecoraster?

20 tonna öxulþungi

Grindurnar þola allt að 20 tonna öxulþunga og henta vel þar sem er mikil umferð vinuvéla.  Snjómokstur er líka ekkert mál með Ecoraster.

Skýringarmynd E50 og Bloxx

Flott að blanda saman

Öruggar læsingar 36 hnappar á m². Mjög sterkir

Efni: Endurunnið LDPE
100% umhverfislega hlutlaust.
20 ára ábyrgð á efninu

Þola mikið, allt að 800 t/m² þrýsings álag (DIN EN 124: 2011)
allt að 20 tonna öxulþunga (DIN 1072)

Fylling að eigin vali, sumir yfirfylla aðrir sléttfylla

Veggþykktin er frá 2,5mm upp í 5 mm eftir gerðum

Bloxx valmöguleiki í hellum:
steypar, granít eða gúmmíhellur
(möguleikar í litum og merkjum, hafið bara samband)