Ecoraster er kjörin lausn fyrir svæði í og við hesthús, svo sem stíur, gerði, ganga, stíga, reiðvöllinn og aðkomusvæði. Grindurnar bæta aðstæður fyrir hesta, draga úr hálku, drullu, pollum og slysum og stuðla að betri velferð með þurrara og stöðugra undirlagi.
Grindurnar þola mikla notkun og íslenskar veðuraðstæður án þess að missa burðargetu eða lögun. Ecoraster grindur dreifa álagi jafnt og halda yfirborðinu stöðugu, jafnvel við mikla notkun, og skapa þannig áreiðanlegt undirlag fyrir hesta og knapa. Samhliða þessu eru grindurnar sveigjanlegar, sem veitir mjúka lendingu og stuðlar að minni álagi á liði, sinar og vöðva hestsins.
Grindurnar eru framleiddar úr 100% endurunnu LDPE plasti án PVC sem er öruggt í snertingu við dýr og mengar hvorki jarðveg né grunnvatn. Með einfaldri uppsetningu, litlu viðhaldi og langri endingu er Ecoraster áreiðanleg og umhverfisvæn yfirborðslausn fyrir hesthúsið.
Auk Ecoraster bjóðum við upp á fleiri lausnir fyrir hesthúsið og reiðaðstöðuna, meðal annars gúmmímottur, lýsingu og vökvunarkerfi fyrir reiðhallir og reiðvelli.







