Hvað er Ecoraster?
Ecoraster eru umhverfisvænar jarðvegsgrindur úr 100% endurunnu LDPE plasti sem styrkir undirlagið og dreifir álagi jafnt. Ecoraster er notað fyrir bílastæði, innkeyrslur, vegi, stíga, hesthúsið, landbúnaðinn, tjaldsvæðið, o.fl. þar sem krafist er bæði burðarþols og vatnsgegndræpis.
Hvar er Ecoraster framleitt?
Ecoraster er framleitt í Þýskalandi samkvæmt ströngum gæðastöðlum.
Þolir Ecoraster íslenskt veðurfar?
Já, við erum með 20 ára reynslu á Íslandi. Kerfið er frostþolið, UV-varið og hannað til að standast miklar hitasveiflur, rigningu og snjó.
Hefur Ecoraster verið notað í raunverulegum verkefnum hér á landi?
Ecoraster hefur sannað sig í hundruðum verkefna um land allt, yfir 20 ára reynsla. Flest allar myndir á heimasíðunni okkar eru teknar á Íslandi.
Hvaða reynslu hefur Landlausnir ehf af jarðvegsgrindum?
Við erum sérfræðingar í jarðvegsgrindum með yfir 20 ára reynslu.
Hvernig dregur Ecoraster úr hálku?
Hvað kostar Ecoraster jarðvegsgrind?
Ecoraster býður upp á margar gerðir af grindum sem henta mismunandi aðstæðum/verkefnum. Rétt val á grind skiptir sköpum þegar kemur að endingu og gæðum til lengri tíma.
Verð á Ecoraster jarðvegsgrindum er frá 3.235 kr/m², en fer eftir því hvaða lausn hentar best fyrir þitt verkefni.
Við hjálpum þér að finna réttu grindina. Hafðu samband við okkur í dag og fáðu tilboð eða ráðleggingu fyrir þitt verkefni.
